Fjölærar plöntur forum: Tími fræsáninga er runninn upp!

 
Page 1 of 5 • 1 2 3 4 5

Views: 19, Replies: 89 » Jump to the end
Imagerannveig
Mar 24, 2011 6:27 PM CST
Name: Rannveig
Hafnarfjörður, Iceland
Þá er sá árstími runninn upp þegar fræbréf og moldarpokar verða áberandi á mínu heimili. Ég er reyndar svo bráðlát að ég byrja að sá í janúar og er bílskúrinn óðum að taka á sig grænan lit Big Grin

Ég hef lengi ætlað að skrifa leiðbeiningar um sáningu fjölæringa en ekki fundið tímann til þess enn. Það má þó vel styðjast við upplýsingarnar sem ég skrifaði um sáningu sumarblóma: http://sites.google.com/site/gardaflorasumarblom/saning . Helsti munurinn er sá að sumarblóm spíra fljótt og vel við stofuhita.

Það er ekki alltaf þannig með fjölæringana. Það má gróflega skipta þeim í tvo flokka: þá sem spíra fljótt og vel við stofuhita ...... og þá sem gera það ekki Big Grin Seinni flokkinum má svo skipta í undirflokka eftir því hversu mikla fyrirhöfn og tilfæringar þarf til að fá fræið til að spíra. Flestum dugar kuldaskeið í nokkrar vikur, önnur þurfa helst að vera úti allann veturinn, þiðna og frosna á víxl og spíra svo þegar hlýna tekur að vori. Önnur þurfa tvö kuldaskeið með hlýindakafla á milli, þau eru ekki fyrir óþolinmóða. Og svo eru enn önnur þar sem það dugar ekkert minna en smá bál til að koma þeim í gang. Reyndar eru það tegundir sem vaxa í aðeins hlýrra loftslagi en hér á landi svo ég hef nú ekki þurft að kveikja í neinum frædollum enn sem komið er ...... Blinking

Það er náttúrulega smekksatriði hversu vísindalegur maður vill vera við þetta ..... það er hægt að hafa frædolluna við stofuhita í 2 vikur, kæli í 6 vikur og síðan á svölum stað fram að spírun og halda nákvæmt bókhald og tímaskráningu um allt ferlið. Það getur verið svoldið snúið ef dollurnar eru 20 eða fleiri. Kannski ekki pláss í ísskápnum. Auðveldast er að sá því fræi sem þarf kuldaörvun að hausti eða síðla vetrar og láta það svo bara standa úti fram á vor. Magga benti á það snilldarbragð að geyma pottana eða dollurnar í glærum plastkassa með loki svo mýsnar komist ekki í fræin. Það er líka bara eitthvað svo snyrtileg lausn. Er búin að útvega mér einn slíkan úr rúmfatalagernum og hann stendur undir húsvegg Thumbs up Svo er hægt að taka dollurnar inn í mars - apríl og þá ætti nú eitthvað að spíra. Reyndar eru sumar tegundir sem spíra við lágt hitastig og þær er hægt að hafa áfram úti þangað til eitthvað spírar. Ef komið er fram í mars þegar fræinu er sáð er kannski ráð að skella því í ísskapinn í nokkrar vikur, eða vonast eftir kuldakasti. En sjálfsagt er enginn sannur garðyrkjuáhugamaður sem vonast eftir kuldakasti í apríl .... Whistling Það eru reyndar fleiri þættir sem hafa þarf í huga. Sumt fræ þarf myrkur til að spíra á meðan annað þarf birtu. Því skiptir sáðdýptin máli og mikilvægt að hylja ekki það fræ sem þarf einhverja ljóstýru til að komast í gang.

Hvað er nú að gægjast upp úr frædollum/pottum/bökkum hjá ykkur og hvernig gengur að fá fræið til að spíra? Það getur verið trjá og runnafræ líka - það gilda í raun sömu lögmál um það .... nema það getur bara verið ENNÞÁ lengur að spíra. Dugar yfirleitt ekkert minna en ca. eins vetrar kuldakast þar ....... eða amk 3-4 mánuðir.

Ég var að fá fræsendinguna frá Garðyrkjufélaginu og það var álíka mikill spenningur hjá mér að sjá hvað væri í umslaginu og þegar stelpurnar mínar eru að opna jólapakkana Hurray! Nú er bara að koma því í mold og finna út hvaða krúsídúllur virka best til að koma því af stað ......

Minni svo á frælistann ef einhverjir eru enn ekki komnir með nóg af fræi til að sá ;) Þar kennir ýmissa grasa og verðið ætti varla að fæla nokkurn mann frá. Það er hérumbil gefins Big Grin
Þar er meðal annars fræ af þessum fallega sjálfsána vatnsbera sem er greinilega afkomandi 'Rauða Risans' en er með fylltum blómum.

Thumb of 2011-03-25/rannveig/c6454b

Rannveig
[Last edited Mar 24, 2011 6:32 PM CST]
Quote | Post #596559 (1)
Imagemagga
Mar 24, 2011 6:54 PM CST
Name: Magga
Reykjavik, Iceland
Ægir´s Mom and Charley´s girl
Þetta er fín grein og mjög tímabær Rannveig. Ég var einmitt á "kafi í drullu" í eldhúsinu í gærkvöldi. Var að sá trjáfræi sem ég var með í kæliskápnum í rökum vikri í nokkrar vikur, sumt af því var byrjað að spíra. Svo er það kassinn góði úti á verönd, nú þarf ég að fara að kíkja í hann. Ég hugsa að ég taki flest sem þar er í hús, er m.a. með slatta af alls konar hlynfræi sem ég er spennt að sjá hvort spírar.

Ég sáði nokkrum tegundum af fræi frá Garðyrkjufélaginu í fyrra. Það spíraði frekar seint, og sumt lítið. Eg lét það bara vera í dollunum í vetur og ætla svo að þrikkla því þegar ég fer að sjá í grænt.

Ég ætla að kíkja betur á frælistann þinn Rannveig, mér líst alla vega mjög vel á vatnsberann sem myndin er af hérna fyrir ofan. Smiling
Magga
Imagerannveig
Mar 24, 2011 7:15 PM CST
Name: Rannveig
Hafnarfjörður, Iceland
Takk Magga :) og góð ábending með raka vikurinn. Fræið tekur mun minna pláss í ísskápnum þannig Thumbs up Já, ég hef reynt að muna eftir að kíkja í kassann þegar það koma hlýindakaflar .... það eru nokkrar tegundir búnar að spíra í honum sem ég kippti þá inn í bílskúr.
Imagegudrun
Mar 26, 2011 6:42 AM CST
Name: Guðrún
Reykjavík
Ætli sé ekki of seint að setja fræin sem ég fékk hjá þér Rannveig í vikur inn í kæliskáp? Kannski bara setja þau í pott og kassa út?
Hvort varstu með Kasmírsalvíuna í myrkri eða birtu?

Ég er með nokkrar fræ teg.af vatnsberum sem mér ákornaðust í haust og setti út í kassa úr tré með glerloki og tveggja ára hrossaskít, kanadísk aðferð. Bara prófa hefur gengið mjög ílla með fjölærblóm hingaðtil. En það er ekkert farið að koma upp enn og ég er ekki mjög bjartsýn.
Haust 2009 sáði ég Úlfareyni, Birki, Elri og Koparreyni gekk vel. Líka Bláberjum og Aðalbláberjum gekk ekki, kannski ekki nógu þolinmóð.
Núna er ég með Koparreyni, Gljámispil, Skriðmispil og runna með hvítum berjum veit ei nafn, reyndi hann í fyrra en gafst upp þá.

Trjá fræ eru úr berjum eða könglum sem ég tíni sjálf á förnum vegi.
Og svo líka sumarblóm út um allt hús
kv Guðrún
Guðrún
Imagerannveig
Mar 26, 2011 1:21 PM CST
Name: Rannveig
Hafnarfjörður, Iceland
Fræinu af draumsólinni er best að sá bara beint út í beð. Henni er meinilla við allt rask og verður lítil og væskisleg ef hún er færð eitthvað úr stað. Hún hefur ekki verið í neinum vandræðum með að sá sér og vaxa sjálf úti í beði hjá mér. Hinar plönturnar myndi ég setja út í potta úr því sem komið er, nema kasmírsalvíuna, hún þarf að vera við stofuhita á björtum stað.

Vatnsberafræ getur verið lengi að spíra og varla orðið nógu hlýtt úti til að það spíri strax. Ég myndi ekki gefa upp vonina, fræið gæti vel spírað þegar fer að hlýna meira. Sáðir þú fræinu beint í kassann eða ertu með það í pottum? Það gæti spírað fyrr ef þú tækir það inn.

Gæti runninn með hvítu berjunum verið snjóber?

Hljómar eins og það sé orðið blómlegt hjá þér líka :) Þetta er svo skemmtilegur tími Big Grin

Imagegudrun
Mar 26, 2011 1:39 PM CST
Name: Guðrún
Reykjavík
Já þetta er skemmtilegur tími.

Við google skoðun er þetta 99% snjóber. Vonandi nær það að spíra núna.
Ég er með mest af vantnsberafræinu beint í kassan en nokkur í pottum, ég prófa að taka þá inn.

Takk fyrir upplýsingarnar um fræin. Þá er bara að drífa sig út í skúr að sá Thumbs up
kv Guðrún

Guðrún
Imagerannveig
Mar 26, 2011 1:49 PM CST
Name: Rannveig
Hafnarfjörður, Iceland
Thumbs up
ImageGudlaug
Apr 6, 2011 8:08 AM CST
Name: Guðlaug
Mosfellsbær
Sælar

Ég hef hingað til aðeins prófað að sá einfaldari tegundunum af fræjum. Þessum sem spíra við stofuhita :) Ég hef mikið dálæti á kryddjurtum, svo hef ég svolítið sáð af sumarblómum, matjurtum og fjölæringum... já þessum auðveldari. Ég þarf samt greinilega að leggjast yfir frælistann frá garðyrkjufélaginu og prófa að setja í svona glærann kassa í haust. Núna var ég líka að kaupa mér nokkra vorlauka svo það ætti að vera ansi blómlegt á svölunum hjá mér í sumar.

Núna er ég að prófa mig áfram með að nota Aerogarden, sem ég keypti nýlega, til að forrækta plönturnar mínar. Þetta er að gefa sig svona ótrúlega vel. Þá get ég líka bara haft 7 tegundir í ræktun í einu og lendi því ekki í vandræðum með að gera of mikið. Þá þarf ég alltaf að umpotta einni tegund áður en ég sái þeirri næstu :)

Ég keypti svona master gardener sett. Þá velur maður sín eigin fræ. Til þess að eiða ekki fúlgu fjár í nýtt og nýtt kitt þá nota ég maxi krop áburð og hef fundið út að ef ég seti smá mold í grisju virkar það fínt í stað svampanna. Þetta sér svo um sig sjálft þar til ég þarf að umpotta því. Kveikir og slekkur ljósin og þornar aldrei :)

Ég seti hér inn mynd af ræktunarhorninu mínu.
Thumb of 2011-04-06/Gudlaug/ef5cee

Það eru aðallega fjölær blóm í aerogardeninum hjá mér. Svo er Lavender í grænu bökkunum. Þrjár mismunandi tegundir sem er kominn tími á að prikkla. Löngu spírurnar næst myndavélinni eru ilmbaunir.

Kær kveðja
Guðlaug
Imagerannveig
Apr 6, 2011 9:42 AM CST
Name: Rannveig
Hafnarfjörður, Iceland
þetta er sniðug græja - örugglega mjög góð líka til að rækta kryddjurtir í eldhúsinu. Já þetta er kannski málið til að halda aftur af fræ-æðinu sem grípur mann eftir áramótin ..... Whistling

Lavender er falleg planta - mér hefur gengið heldur illa með hana líka. En er samt að reyna áfram .... Rolling my eyes.

Rannveig
Imagegudrun
Apr 6, 2011 1:23 PM CST
Name: Guðrún
Reykjavík
Halló

Langar aðeins að sýna ykkur ræktunina hjá mér. Er reyndar mest með sumarblóm inni aðeins örfá fjölær og svo fjölær úti í kassa.
Mest vandræðin með rétta hitastigið að það sé ekki of heitt og svo birtan. Er að prófa gróðurperur núna , virka ágætlega.

Ég sái alltaf of miklu, ætlaði svo að passa mig núna en það hefur greinilega ekki gengið upp.

Í bökkunum eru stjúpur 3litir. morgunfrú, Lobelia 2litir, skrutnál, skjaldflétta, dianthus sweetness og chiba. Svo ekki komið upp Daggarbrá, Kasmírsalvía og Kínaspori. Lovey dubby

kv guðrún




Thumb of 2011-04-06/gudrun/819513
Thumb of 2011-04-06/gudrun/a9c3f6
Thumb of 2011-04-06/gudrun/2395ea
Guðrún
ImageGudlaug
Apr 6, 2011 3:00 PM CST
Name: Guðlaug
Mosfellsbær
Já þessi aerogarden virðist hennta mér ágætlega. Svo er einmitt ætlunin að rækta kryddjurtir í honum á veturna kanski tómata í sumar. Hann verður ekki tekinn mikið úr sambandi þessi :)

Guðrún þetta lítur vel út hjá þér. Greynilega algengt vandamál að missa sig í fræsáningunni :) Svo er einmitt alltaf vandamálið að finna jafnvægi milli hitastigs og birtu. Ég hef mín því miður ekki nærrum því við kjöraðstæður. En plönturnar eru ótrúlega seigar samt sem áður. Maður verður að vinna úr því sem maður hefur.

kveðja
Guðlaug
Imagerannveig
Apr 6, 2011 5:27 PM CST
Name: Rannveig
Hafnarfjörður, Iceland
já sammála, þetta lítur rosa vel út hjá þér Guðrún :) Eins og Guðlaug segir þá verður maður að vinna úr því sem maður hefur - plönturnar geta plumað sig ótrúlega vel þó það sé ekki allt eftir bókinni. En þær líta vel út svo þetta er greinilega alveg að virka hjá þér Thumbs up Sniðug að nota plastbakkana undan abt dollunum :)

Guðlaug - gæti alveg trúað því að aerogarðurinn verði í stöðugri notkun ;)

Ágætt að vita til þess að ég er ekki ein með að missa mig í fræjunum ... Big Grin Það eru einhver ósköp af sumarblómum úti í bílskúr sem þarf að dreifplanta ...... og ég er ekki enn búin að finna tíma til að koma fjölæru fræjunum í mold. Whistling
Imagegudrun
Apr 9, 2011 11:13 AM CST
Name: Guðrún
Reykjavík
Halló

Kasmírsalvían farin að kíkja upp úr moldinn, ekkert smá ánægð með það.
Ætti ég að fara að sá út Draumsólinni eða bíða aðeins með það?

kv Guðrún
Guðrún
Imagerannveig
Apr 9, 2011 2:58 PM CST
Name: Rannveig
Hafnarfjörður, Iceland
Frábært að heyra Thumbs up Held þér sé alveg óhætt að sá draumsólinni út núna. Hún er farin að spíra úti. Bara passa að róta ekki við plöntunum þegar þær byrja að spíra.
Imagemagga
Apr 15, 2011 5:05 PM CST
Name: Magga
Reykjavik, Iceland
Ægir´s Mom and Charley´s girl
Gaman að sjá hvað þið eruð duglegar að sá blómafræi af ýmsum tegundum. Ég var alveg fræ-óð í mörg ár, sáði alltaf með fullt af sumarblómum. Þá var garðurinn alveg fullur af sumarblómum. Ilmbaunirnar voru alltaf í mestu uppáhaldi hjá mér, en svo var ég líka með skjaldfléttu, vitið þið að hún er mjög fín í salat og blómin líka. Einnig var ég með lobelíu, skrautnál, silfurkamb, tóbakshorn. Einnig Gladiólulauka, dalíur og begóníur. Síðustu árin hef sé svo snúið mér aðeins meira að fjölærum plöntum, það er ekki alveg eins mikið drullumall við þær. Rolling on the floor laughing Rolling on the floor laughing

Nú í ár sáði ég bara tóbakshorni. Systir mín sáði skrautnál, lobelíu og silfurkambi. Svo skiptum við plöntunum á milli okkar, og það reynist alveg prýðilega. Ég þarf einmitt að prikkla tóbakshorninu núna um helgina. Svo þarf ég að passa plönturnar hennar systur minnar á meðan hún skreppur til útlanda um páskana. Group hug

Svo er sáning á trjáfræi alveg kapituli útaf fyrir sig. Held ég hafi sáð um 20 tegundum af trjám og runnum sem eru að byrja að koma upp núna. Rolling my eyes.
Sumt af því eru fræ sem ég hef safnað sjálf.

Magga
Imagerannveig
Apr 15, 2011 8:24 PM CST
Name: Rannveig
Hafnarfjörður, Iceland
Hæ Magga :)

Það er nú góður slatti af trjáfræi sem þú ert að sá ;)

Mér hefur ekki enn tekist að vera stabíl þegar kemur að sumarblómunum. Ég á svo mikið af fræi og erfitt að velja úr hverju á að sá í janúar. Ég er með 54 teg. af sumarblómum í uppeldi, þar af mismunandir sortir af Lobeliu, stjúpum, ljónsmunna, tóbakshorni og ilmertum. Það er hellingur sem ég á enn eftir að prikkla. Ég er í tómu tjónu með gróðurhúsið mitt núna - það hefur farið illa í rokinu í vetur. Var passlega búin að tjasla því saman á sunnudaginn þegar veðrið rauk upp aftur, svo hefur verið svo hvasst alla vikuna að mér hefur ekki fundist taka því enn. Þarf virkilega að fara að koma sumarblómunum þangað út - plássið í bílskúrnum dugar ekki fyrir 54 teg. sumarblóma þegar búið er að prikkla allt ;) Whistling Og svo eru það fjölæringarnir líka .... en ég hef nú oft sáð fleiri tegundum af þeim en núna ..... það eru "bara" rúmlega 20 ;) Vonandi fer nú veðrið að skána bráðlega - stefni á að prikkla restina um helgina og þá verður eitthvað að fara út í gróðurhús. Blinking

Rannveig
Imagegudrun
Apr 16, 2011 1:16 PM CST
Name: Guðrún
Reykjavík
Rannveig og Magga þið eruð ekkert smá duglegar, allur þessi fjöldi. Thumbs up

Guðlaug flott hjá þér að láta ekki garðleysið aftra þér frá plöntunum. Thumbs up

Já abt bakkarnir eru ágætir en í það grynnsta, en sleppa allveg. Engjaþykknisbakkar eru líka að virka fínt. Hef bakkana tvöfalda, þá er ekki vandræði með frárennslið, vikur á milli og hægt að hafa út í glugga.



Ilmbaunir verða klárlega á frælista næsta árs, mjög fallegar og kannski tóbakshorn.

Guðrún
Guðrún
Imagemagga
Apr 16, 2011 1:54 PM CST
Name: Magga
Reykjavik, Iceland
Ægir´s Mom and Charley´s girl
Þurfti að leiðrétta, maður er alltaf að sjá villur.
Það var alltaf smá vesen með ilmbaunirnar og skjaldfléttuna, af því að þetta eru klifurplöntur. Ég náði mér alltaf í sprek af hávöxnum fjölæringum frá fyrra ári og lét plönturnar vefja sig utanum það. Thumbs up Annars fást oftast grannir teinungar í Garðheimum/Blómavali sem ætlaðir eru fyrir þetta.

Undanfarið hef ég verið að safna kaffikorgi í vinnunni. Þetta er talið vera besta efni sem maður getur bætt í garðinn og í pottana. Ég er komin með fullan stóran plastkassa. Það ráku allir upp stór augu þegar ég mætti með tvær fötur í vinnuna, ekki í fyrsta skipti sem ég er álitin galin. Rolling on the floor laughing Rolling on the floor laughing Rolling on the floor laughing Stærri fötuna setti ég í skápinn undir vaskinum, en sú minni, lítil græn með loki fær að standa á borðinu og er losuð í þessa stóru þegar hún er orðin full. Ég var fyrir löngu búin að lesa um þetta á netinu, en lét semsagt til skarar skríða fyrir hálfum mánuði. Ein kunningjakona mín segir að kaffikorgurinn fæli ranabjöllur frá plöntum, ég sel það nú ekki dýrara en ég keypti það, en ég ætla að prófa. Smiling

Svo er það bananahýðið, það er það besta sem við fáum fyrir rósirnar. Lovey dubby Lovey dubby
Magga
[Last edited Feb 13, 2013 2:08 PM CST]
Quote | Post #623280 (18)
Imagerannveig
Apr 16, 2011 3:02 PM CST
Name: Rannveig
Hafnarfjörður, Iceland
Já ég hef heyrt þetta með kaffikorginn og bananahýðið. Þetta fer allt í safnkassann hjá mér. En þar sem ég drekk ekki kaffi verður heldur lítið af kaffikorg Whistling Minnir að ég hafi lagað kaffi eingöngu til að fá korg til að dreifa í kringum jarðaberin í fyrra .... hellti kaffinu Big Grin

Komst að því í morgun að ein þakrúðan úr gróðurhúsinu hafði tekist á loft og splundrast í rokinu fyrir viku þannig að það verður enn einhver bið á að gróðurhúsið komist í gagnið. Bílskúrinn er orðinn smekkfullur af plöntun Rolling my eyes. Náði að dreifplanta slatta í dag .... ætli það endi ekki með því að stofugluggarnir verði orðnir fullir líka. Whistling Ég hef notað grillpinna til að stiðja við ilmerturnar og það hefur gengið ágætlega. Verst hvað þær vilja flækjast saman ef pottarnir standa þétt. Rolling my eyes.
Imagemagga
Apr 18, 2011 11:25 AM CST
Name: Magga
Reykjavik, Iceland
Ægir´s Mom and Charley´s girl
Sæl Rannveig og allir vinir Garðaflóru.
Stofuglugginn hjá mér hefur í gegnum árin gegnt því hlutverki að vera gróðurhús ásamt minni gluggum í húsinu. Það er enginn gluggi á bílskúrnum, þannig að bóndinn hefur fengið að hafa hann í friði. Ég hef heldur aldrei fengið mér ræktunarljós, en ég ætti kanski að splæsa í svoleiðis fyrir næsta vor. Smiling

Bóndinn útbjó í fyrrasumar fyrir mig skjólreit með bogum sem við klæddum með plasti. Ég fyllti hann með trjáplöntum sem ég ætla að gróðursetja í móann í vor, ásamt nokkrum plöntum sem eiga að fara í garðin, m.a. rauði reykrunninn Purple Smoke Bush (Cotinus coggygria) sem ég fékk í Borg í Hveragerði í fyrra.

Plastið rifnaði og fauk í rokinu sunnudaginn 10/4 en ég held að það sé allt í lagi með plönturnar. Þann dag var yngsta dóttir mín með einsöngstónleika (útskriftartónleika) en hún er að taka burtfararpróf úr Söngskólanum í Reykjavík núna í vor. Alveg ótrúlegt hvað margir komu á þessa tónleika þrátt fyrir þetta brjálaða veður, og sú stutta náði að yfirgnæfa hávaðann í veðrinu og brilleraði að sjálfsögðu. Hurray! Hurray!

Ef þú átt eitthvað eftir af fræi eftir, væri ég til í að fá nokkrar tegundir, sérstaklega ef þú átt eitthvað sem gæti dafnað í sveitinni,

Í gær fann ég á vefsíðu Garðyrkjufélagsins tengil á fyrirlestra sem Ávaxtaklúbbur félagsins ásamt Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri stóðu fyrir. Þetta var líklega heils dags námskeið fyrir þá sem eru með í tilrauninni með ávaxtatré sem Garðyrkjufélagið stendur fyrir. Ég komst ekki á fyrirlesturinn um ávaxtatré sem var í byrjun apríl. Ég lá semsagt yfir þessu meiripartinn af deginum í gær. Ears perked up! Ef þið hafið áhuga þá farið þið á heimasíðu Garðyrkjufélagsins og smellið á tengil ávaxtaklúbbsins og þar er tengill á þessa fyrirlestra.

Ég hef áhuga á að fá mér ávaxtatré til að prófa, Hvað með ykkur?? Big Grin
Ég er reyndar með slatta af eplatrjám í uppeldi, en þau eru af fræi, og ekki ágrædd, þannig að er langt í að þau beri ávöxt. Sad Sad Kannski maður fari að prófa sig áfram í ágræðslu. Smiling Smiling
Magga

Page 1 of 5 • 1 2 3 4 5

« Back to the top
« Cubits.org homepage
« Garðaflóra cubit homepage
« Fjölærar plöntur forum

Only subscribed members of this cubit may reply to this thread. There is a "Join this cubit" button at the bottom of this page.

Garðaflóra

Spjallsíða fyrir garðyrkjuáhugafólk á Íslandi. A gardening site for people gardening in Iceland

» Home
» Forums
» Articles
» Store
» Database

Cubit owner: rannveig

» Contact Admin: rannveig